EY er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri í ár líkt og frá upphafi mælinga

Niðurstöður greiningar Viðskiptablaðsins og Keldunnar á Fyrirmyndarfyrirtækjum hafa nú verið unnar og eru Fyrirmyndarfyrirtæki 2021 um 2% íslenskra fyrirtækja. EY hefur verið á listanum yfir Fyrirmyndarfyrirtæki frá upphafi.

Tilgangur EY á heimsvísu er Building a Better Working World, að búa til betri heim til að lifa og starfa í fyrir okkur öll. Við leggjum áherslu á langtímavirði fyrir viðskiptavini okkar, langtímavirði fyrir starfsmenn okkar og langtímavirði fyrir samfélagið í heild sinni.

Við viljum óska Fyrirmyndarfyrirtækjum til hamingju með árangur sinn á árinu og vonumst til að sjá enn fleiri fyrirtæki bætast í hópinn á næstu árum.