Guðjón Norðfjörð nýr forstjóri EY á Íslandi

Guðjón Norðfjörð hefur verið ráðinn forstjóri EY á Íslandi. Hann tekur við starfinu af Margréti Pétursdóttur, sem hefur verið forstjóri síðastliðin 3 ár og mun hún nú vinna að því að koma nýjum forstjóra inn í starfið. Margrét hefur m.a. innleitt nýjar þjónustulínur og nýja stefnu EY þar sem lögð er áhersla á langtímavirði í öllu sem gert er og mun Guðjón taka við keflinu og halda þeirri góðu vinnu áfram.

 Guðjón er einn af eigendum EY og hefur starfað hjá félaginu frá stofnun þess á Íslandi í desember 2002. Hann er viðskiptafræðingur af reikningshalds- og endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands og hefur á sínum starfsferli unnið á flestum sviðum félagsins og komið að þróun þess og uppbyggingu frá stofnun, ásamt því að veita fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum þjónustu. Guðjón hefur síðastliðin ár verið sviðsstjóri rekstrarráðgjafar og viðskiptaþjónustu, en þar á undan var hann sviðsstjóri fyrirtækjaráðgjafar. Hann hefur yfir 25 ára reynslu af reikningsskilum, endurskoðun, ráðgjöf á sviði fjármála og rekstrar, ásamt ýmsum úttektum, rannsóknum, matsmálum og fleiru.  Hann þekkir því innviði félagsins og alla þjónustuþætti starfseminnar mjög vel. Guðjón er kvæntur Örnu Hansen og eiga þau þrjú börn.

 EY er á meðal þeirra fyrirtækja sem er með leiðandi stöðu á alþjóðavísu í endurskoðun og ráðgjöf. Hjá EY á Íslandi starfa um 80 manns með fjölbreytta menntun, bakgrunn og reynslu. EY er tilgangsdrifið fyrirtæki. Tilgangur EY er að stuðla að betri heimi til að lifa og starfa í og skapa langtímavirði fyrir starfsfólk, viðskiptavini og samfélagið í heild sinni með því að byggja upp traust á mörkuðum. 

 „Rekstur EY á Íslandi hefur gengið vel og vaxið og dafnað á undanförnum árum og er það mér mikill heiður að taka við sem forstjóri félagsins, segir Guðjón.  Það eru virkilega spennandi tímar framundan hjá félaginu og mun ég leggja mig fram um að halda áfram þeirri góðu vinnu sem Margrét hefur stýrt undanfarin ár og vil ég þakka henni vel unnin störf.  Þá eru ekki síður mörg spennandi tækifæri fyrir okkar viðskiptavini m.a. í sjálfbærni, sjálfvirkni og stafrænum lausnum. Ég sé fyrir mér að félagið muni eflast enn frekar með því öfluga fólki sem starfar hjá félaginu.